Hægt að nota fyrri tímann til að klára stöðvavinnu gærdagsins og koma henni inn á bloggið.
Seinni tími verður helgaður UT og nú ætlum við að kíkja á Google Earth forritið (það sem er uppsett í tölvunum ekki veflægu útgáfuna) og skoða Ísland sérstaklega. Þeir sem hafa verið í valtímum og þekkja forritið vel aðstoða.
Hvernig væri að…..
- mæla vegalengd Þjórsár frá upptökum til ósa.
- skoða Kvísarveitu.
- kíkja á hvaða eldstöðvar eru merktar m.þ.a. nota þekjur.
- athuga fossana.
- skoða gróðurútbreiðslu t.d. í Þjórsárverum.