22. ágúst – 6. október
umhverfi og útinám – vistkerfi, dýrafræði, erfðir og þróun
Í þessum fyrsta hlekk skólaársins verður áhersla á umhverfi og líffræði.
Við ræðum hringrásir efna og samspil manns og náttúru.
Áhersla á líffræðilegan fjölbreytileika.
Við fræðumst um vistkerfi, fæðukeðjur og samskipti lífvera.
Sumir skoða plöntur, aðrir fugla og önnur dýr.
Rannsóknarvinna, verkefni og leikir í bland.
Næstu vikur fer námið mikið fram utandyra og nýtum við okkur skólaskóginn og nærumhverfið.
Mikilvægt að koma klæddur eftir veðri.