Valið hugtak sett í samhengi við ólíka efnisþætti náttúrugreina.
Einstaklingsvinna. Nemendur hafa fengið þjálfun í gerð hugtakakorta enda skólinn í þróunarverkefninu Orð af orði þar sem hugarkort hafa verið kennd og notuð. Auk þess hefur hver hlekkur í náttúrufræðinni síðustu þrjú ár byrjað á hugtakakortum. Því er ákveðið að allir nemendur vinni og skili vel útfærðu korti sem gert er í kringum eitt valið hugtak. Hér er fylgjandi matslisti sem verður hafður til hliðsjónar við mat á verkefninu. Reiknað er með vikuvinnu (fjórar kennslustundir) til að klára kortagerðina og svo er afrakstur kynntur fyrir öðrum nemendum (3-5 mínútur) þar sem sagt er frá hugtakinu, umræður og kortið hengt upp.
Hér má nálgast matsblað sem haft verður til hliðsjónar
Hugtök sem koma til greina (athugið að það má koma með hugmyndir að öðrum viðfangsefnum):
Gerfiefni | Fruma | Eðlismassi | Jarðvegseyðing |
Vatn | Lífhvolf | Sjávarföll | Rafsegulróf |
Efnahvörf | Náttúruvernd | Bylgjur | Rafmagn |
Úthljóð | Ljóstillifun | Náttúruval | Frumbjarga |
Segulsvið | Endurnýting | Úrgangur | Sjálfbærni |
Frumefni | Varmi | Lotukerfi | Jarðvegur |
Lífvera | Smitsjúkdómar | Vistheimt | Hafstraumar |
Vistkerfi | Hringrásir efna | Okfruma | Eldgos |
Líftækni | Auðlindir | Búsvæði | Þyngdarkraftur |
Jarðhiti | Þróun | Tegund | Gróðurhúsaáhrif |
Pingback: LOKAMAT | Náttúrufræði Flúðaskóla
Pingback: 2. – 9. maí 2016 Hugtakakort – lokamat | Náttúrufræði Flúðaskóla
Pingback: 9. maí 2016 Kynningar á hugtakakortum – annar hluti lokamats. | Náttúrufræði Flúðaskóla
Pingback: 24. apríl 2017 Lokamat – hugtakakort og tilraun | Náttúrufræði Flúðaskóla
Pingback: 2. maí 2017 skil á skýrslu og vinna við hugtakakort – lokamat | Náttúrufræði Flúðaskóla
Pingback: 9. maí 2017 Kynningar á hugtakakortum – annar hluti lokamats | Náttúrufræði Flúðaskóla
Pingback: 23. apríl – 3. maí Tilraun – lokamat | Náttúrufræði Flúðaskóla
Pingback: 7. maí 2018 Hugtakakort – lokamat | Náttúrufræði Flúðaskóla
Pingback: 8. maí 2018 Skil á skýrslu og hugtakakort – lokamat | Náttúrufræði Flúðaskóla