Kennari ekki á svæðinu en þið ætlið að nýta tímann í að fræðast um tunglið. Þetta er einstaklingsverkefni sem þið skilið inn á bloggið.
Byrjið að fræðast um Tunglið okkar.
- Upplýsingar um tunglið frá stjörnuskoðun.is
- Skoðið flipp um jörðina, tunglið og sjávarföll
- stærðir en þið verðið að opna þessa slóð í edge-vafranum í tölvunni (gengur ekki í chrome)
- fróðlegt að kíkja á þessa mynd um hvað kemst á milli Jarðar og Tungls
- Tunglið og nafngiftir
Eftir þessa fræðslu getið þið tekið saman smá pistil um tunglið og skilað inn á bloggið. (Flokka í hlekk 3 og verkefni)
Svo er hægt að kíkja á þessa æfingu frá PhET lunar landing og hér er verkefnablað með Lunar landing PhET sem þarf ekki að prenta út bara svara spurningum inn á bloggið.
Ef tími er til má æfa sig í fingrasetningu – senselang
Þeir sem eiga eftir að klára myndband um skaðsemi reykinga geta notað hluta af tímanum til að ganga frá því og setja inn á fb-síðu bekkjarins í náttúrufræðinni.
Sem sagt fullt af verkefnum – gangi ykkur vel 😉