Heimildaritgerð í dýrafræði.
Nú er komið að dýrafræðiritgerðinni. Nauðsynlegt að bera undir kennara val á viðfangsefni og huga vel að bóklegum heimildum áður en endanlega er ákveðið hvað skal skrifa um. Nauðsynlegt er að hafa a.m.k. tvær skriflegar heimildir.
Ritgerðina á að setja upp í tölvu og þið munuð geta nýtt fimmtudagstíma á Tungufellsdal næstu vikurnar.
Skiladagar:
Fyrir föstudag 22. september skila
- hugtakakorti sem pdf skjali í tölvupósti til kennara og
- inn á verkefnabanka á bloggi.
Fyrir föstudag 20. október skila
- útprentaðri ritgerð til kennara í plastmöppu,
- senda wordskjali í tölvupósti til kennara og
- setja pdf útgáfu í verkefnabankann.
Umfang ritgerðar er um 3 bls. texti (words 1000 – 1600)
Leturgerð Times New Roman 12, línubil 1 ½ .
Ritgerðin á að vera uppsett skv. fyrirmælum inn á náttúrufræðisíðunni.
Skoða vel matslista sem þið fenguð og er einnig hér: matsbladritgerd2016
Það sem metið verður er:
- Réttritun, málfar og framsetning.
- Afmörkun efnis.
- Uppbygging og samhengi.
- Fræðileg umfjöllun.
- Inngangur og lokaorð
- Meðferð heimilda og heimildaskrá.
- Notkun forrits.
- Frágangur og útlit.
- Annað.
Gangi ykkur vel.
Kveðja Gyða Björk.