Orð af orði og hugtakavinna í dag.
Lesum í hópum um eðlismassa og varma í Eðlisfræði 1
Svo er fínt að spjalla:
- Hiti, vindur og úrkoma stafa af því að sólin hitar ekki Jörðina jafnt.
- Hvernig kemur eðlismassi þar við sögu?
- Hvar hitnar Jörðin mest?
- Hvernig tengist eðlisfræðin við aðrar fræðigreinar eins og t.d. veðurfræði?
- Skiptir möndulhalli og lögun Jarðar einhverju máli fyrir veðurfar á plánetunni okkar?
- Hvað er loftþrýstingur?
- Hvernig myndast ský og úr hverju eru þau gerð?
- Hvernig myndast vindar og af hverju finnst okkur vindurinn oftast kaldur?
- Hvað er hafgola og af hverju er hún oftast seinni hluta dags?
Veður á Íslandi.
- Skoðaðu vef Veðurstofu Íslands
- Hvað er mælt á veðurathugunarstöðvum? (hugtök, mælieiningar, tækni til mælinga)
- Skoðaðu veðurkort.
Skapandi skrif og varmi verkefni af kennsluvef í eðlisfræði