Kennari er ekki á svæðinu en þið eigið eftir að hafa nóg að gera 😉
Fyrst er að fara inn í tölvuver og taka nokkrar æfingar í Sense-lang u.þ.b. 20 mínútur.
Síðan eru það spjaldtölvuverkefni og byrjum á Plöntuvefnum skoðið hinar ýmsu plöntur, skrifið í notes hverjar þið þekkið þegar. Kíkið á hvað þarf til plöntugreiningar og reynið svo fyrir ykkur í eins og einum leik.
Að lokum á að sækja ferðasprekið frá í gær og koma ferðasögunni inn á flipgrid. Það þarf að sýna vel ferðasprekið og útskýra liti og hvers vegna hitt og þetta er fest við sprekið. Ein og hálf mínúta til frásagnar.
Gangi ykkur nú allt í hag………Sjáumst!