Þeir sem ekki blogga í heimanámi skila eftirfarandi verkefni skriflega til kennara í síðasta lagi næsta fimmtudag eða í tölvupósti gydabjork@fludaskoli.is
Velja þrjú af eftirfarandi verkefnum. Upplýsingar í krækjum í lok færslu.
- Berið saman Þjórsá og Hvítá. Hvað er líkt, hvað ólíkt og rökstyðjið.
- Fossarnir í Þjórsá. Segið frá.
- Heklugos – gossagan sem þekkt er. Stærstu gosin …. yngstu gosin …. ???? Lýsið einu gosi sérstaklega.
- Segið frá byggð í Þjórsárdal og áhrif Heklugosa á byggðina.
- Lýsið því hvernig eldfjall Hekla er?
- Hvaða hjátrú er tengd Heklu?
Munið að ekki er leyfilegt að taka texta beint af neti….verður að umorða og vitna í heimildir.
- Vísindavefurinn: „Hversu gömul er Hekla?“
- Vísindavefurinn: „Hvaða ár mun Hekla gjósa næst?“
- Vísindavefurinn: „Af hverju gaus Hekla árið 2000?“
- Vísindavefurinn: „Hvers vegna er Hekla ílöng en ekki keila?“
- Vísindavefurinn: „Af hverju heitir fjallið Hekla kvenkynsnafni?“
- Landið og náttúran – Þjórsárstofa
- Áhugaverðir staðir – Þjórsárstofa
- Náttúrufræðistofnun – jarðfræði
- Göngukort af Þjórsárdal.
- Jarðhræringar á Íslandi – Veðurstofan
- Ísland í tölum – Landmælingar Íslands