Þeir sem ekki blogga í heimanámi skila eftirfarandi verkefni skriflega til kennara í síðasta lagi næsta fimmtudag eða í tölvupósti gydabjork@fludaskoli.is
Hægt er að styðjast við glósur og verkefni úr tímum, kennslubækur og svo veraldarvefinn.
- Berðu saman hreyfiorku og stöðuorku.
- Notaðu teikingu af hitabrúsa og lýstu því hvernig einangrun dregur úr varmatapi.
- Hvernig gengur að spjalla við vini á Tunglinu? Útskýrðu svarið þitt vel.
- Hvers vegna lærum við eðlisfræði? Hvernig getur hún verið
gagnleg fyrir okkur sem einstaklinga og fyrir mannkynið í heild? - Hvaða gagn hefur mannkynið haft af kenningum Alberts
Einsteins og hvaða áhrif höfðu þær á gang síðari heimsstyrjaldar? - Um einingakerfi og mælingar
Settu rétt orð í eyðurnar. Orðin finnur þú í kaflanum Heimur eðlisfræðinnar
Fyrir upphaf ______________ byltingarinnar árið 1789 voru þar í landi notaðir fjölmargir mismunandi kvarðar fyrir ______________ og massa en í kjölfar byltingarinnar var ákveðið að samræma _________________. Þá ákváðu Frakkar að nota lengd ákveðinnar málmstangar, ___________________________, sem undirstöðu lengdarmælinga og massa ákveðins málmsívalnings, viðmiðunarkílógrammsins, sem grunneiningu ______________________. _____________________ er sá tími frá því að sól er í suðurátt þangað til hún er næst í suðurátt. Sólarhringnum er síðan skipt upp í 24 ______________________, klukkustundinni skipt í 60 __________________ og mínútunni í 60 ____________________. Það eru kallaðar ___________________________ þegar sól er hæst á lofti. Einingarnar metri, sekúnda og ______________________ eru grunneiningar metrakerfisins og svokallaðs SI-kerfis. Flest hús á Íslandi eru hituð með ____________________. Með því að bora eftir heitu vatni eða gufu þá getum við flutt ____________________ úr jörðinni upp á yfirborðið þar sem við getum nýtt orkuna. Breytingarnar á hæð sjávar á milli flóðs og fjöru nefnast ___________________. Aðdráttarkraftar frá ___________________ og sólu hafa áhrif á sjávarföllin.