
Kynning sett inn á flipgrid eða kynnt í tíma.

Kynning sett inn á flipgrid eða kynnt í tíma.
Prófið tekur tvær kennslustundir og verður leyfilegt að nýta hjálpargögn, bækur, glósur nemenda og veraldarvef. Nemendur hafa aðgang að tölvuveri, fartölvum og spjaldtölvum. Prófið er einstaklingsverkefni. Skila skriflega á blaði eða í tölvupósti – hvað sem ykkur hentar best.
Þið dragið spurningar úr ákveðnum flokkum (ekki er hægt að skila spurningum sem hafa verið dregnar ;/) Það eru því ekki allir nemendur með sömu spurningarnar. Flokkarnir eru sjö og þið eigið að svara fimm spurningum – það má því sleppa tveimur spurningum sem voru dregnar.
Gangi ykkur vel.
Hópar skila skýrslu bæði útprentuðu eintaki og eins stutt kynning og samtal við kennara.
Hugtakakortið er einstaklingsvinna. Allri hafa valið sér hugtak og sumir eru byrjaðir að vinna í kortunum sínum. Upplýsingar og matslista er að finna hér.
Hjálpargögn eru bækur af öllum stærðum og gerðum, veraldarvefurinn og kannski glósurnar ykkar.
Tölvuverið er opið.
Munið eftir sjálfstæðum og öguðum vinnubrögðum.
VIÐFANGSEFNI FYRIR HUGTAKAKORTAVINNUNA.
NEMENDUR VELJA SÉR VIÐFANGSEFNI FYRIR HUGTAKAKORTAVINNUNA

Munið að tengja hugtakið við hin ólíku svið náttúrufræðinnar (jarðfræði, efna- og eðlisfræði, líffræði og umhverfisfræði), nýta örvar, liti, undirstrikun og skrifa á tengilínur.
Kennari ekki á svæðinu.
Síðasti tíminn til að klára skýrslu úr tilraun.
Gera vel og gera betur….
Þeir sem eru búnir geta valið sér hugtak og byrjað að undirbúa kortagerð.
Gangi ykkur sem allra best.
VIÐFANGSEFNI FYRIR HUGTAKAKORTAVINNUNA.
HVAÐA Tilraun á að framkvæma á morgun.
………………………. og ég endurtek…………………….
Athugunin verður framkvæmd í fyrramálið og á að skila skýrslu viku síðar, þann 3. maí. Kennari ákveður hópaskiptingu og er miðað við þrjá nemendur í hópi. Nemendur fá tvöfaldan tíma í tilraunina og svo tvær kennslustundir til að vinna að skýrslugerð. Áherslur koma fram á þessu matsblað sem haft verður til viðmiðunar. Skriflegri skýrslu er skilað með samtali við kennara sem er hluti af matsferlinu. Upplýsingar um hópa og tilraunir
Þið hafið frjálsar hendur um það hvernig tilraunin er sett upp. Athugið að hafa ekki margar breytur og forðast að flækja málin. Kennari fylgist með vinnuferlinu, samvinnu, framkvæmd, meðhöndlun tækja/efna og vinnubrögðum. Síðan er skýrslan gerð eftir kúnstarinnar reglum og skilað með samtali við kennara þar sem metin er þekking á umfjöllunarefninu, rannsóknarspurning ígrunduð, niðurstöður túlkaðar, skekkjuvaldar og heimildir svo eitthvað sem til tekið.
Athugið að efni og tæki þurfa að vera til í skólanum. Ef það er eitthvað annað sem þarf í tilraunina þá þurfið þið að redda því sjálf og auðvitað að koma með það í skólann á morgun.
Byrjum tímann á ör-umræðu um lífríkið….smá viðhorfskönnun í mentimeter. …..
Orka á Íslandi. Hægt að nálgast verkefni í nearpod fyrir þá sem vilja VJSGM og svo vindum við okkur í verkefni dagsins.
Nemendur vinna í hópum og velja sér viðfangsefni. Nokkrar hugmyndir:
matsblað sem er hægt að hafa til viðmiðunar. Markmiðið er að útbúa líflega og fróðlega kynningu fyrir jafningja. Miðað er við 5 mínútur fyrir kynningu og spurningar. Miðlunaraðferð er frjáls. Þið hafið þessa viku til að klára og við miðum við skil inn á padlet eða á flipgrid
Skolen i norden – upplýsingar um orkugjafa
Hmmm….Optimetron – Introducing the Future of Self-Sufficient Living…..
Þessa viku og þá næstu hvílum við okkur á hefðbundnu skólastarfi og glímum við skemmtileg verkefni þar sem árshátíðin er efst á baugi.
- Undankeppni skólahreysti mánudag 12. mars
- Árshátíð yngsta- og miðstigs miðvikudag 14. mars
- Árshátíð unglinga miðvikudagskvöld 21. mars
- Skólahreysti fimmtudag 22. mars.
- Aukasýning á leikriti fimmtudagskvöld 22. mars.
- Skólasýning á leikriti föstudagsmorgun 23. mars…………
- ….. og svo er komið páskafrí með meiru 😉
Hvað er móberg?
Hafið í huga:
Skoðum stuttlega sögu jarðar. Flott yfirlit hjá stjörnufræðivefnum þaðan sem þessi mynd er tekin:
Spyrjum spurninga:
Verkefnavinna / stöðvar í boði allt eftir því sem vindurinn blæs. Muna að skila afrakstri tímans inn á bloggið.
Eftirfarandi stöðvar í boði:

HUGTAKAKORT, ÍSLANDSKORT OG UMRÆÐUR.

þar sem áhersla næstu vikur verður:
– náttúra – jarðfræði – eðlisfræði – líffræði – umhverfi –
– skipulag – auðlindir – samfélag –
– tækni – náttúruvernd – orka – hamfarir –
Meginmarkmiðið er að efla grundvallarskilning á náttúru Íslands. Við skoðum myndum og mótun landsins, ytri og innri öfl. Áhersla á myndunarsögu landsins, þróun gróðurfars, sérkenni íslenskrar náttúru til sjós og lands. Veltum fyrir okkur umhverfisþáttum og setjum í samhengi við jarðsögu landsins.
Til stuðnings nýtum við okkur meðal annars

Um að gera að velta upp spurningum eins og ….
…hvað er náttúra?
…hvað er umhverfi?
…er íslenskt vatn íslenskt?
…hvernig mótar maður landið?
…menningarlandslag, hvað er það?
…hver á Dettifoss?
…á ég að hreinsa fjöruna?
Í boði er PhET forritið Energy Skate Park og vinna verkefni tengd því:
Hvað er kinetic energy, potential energy, thermal energy og total energy? Skoðið mismunandi gröf t.d. Bar Graph eða energy vs. position.By Anacristinanorato (Own work) [CC BY-SA 4.0 (https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4.0)], via Wikimedia Commons
Prófið mismunandi þyngdarkrafta, breytið brautinni og einnig er hægt að breyta kallinum!
Segið frá á blogginu og gerið smá grein fyrir þessum leik. Hvað eruð þið að læra í dag?
Stöðvavinna í dag …paravinna… verði ykkur að góðu!
Þeir sem eiga eftir að klára könnun ljúka því.
Námsmat síðasta hlekks til skoðunar;kannanir, hugtakakort, blogg og önnur verkefni. Kíkju á dæmi og rökræðum.Þessi vika; spennandi áskoranir í verkefnatíma þar sem tekist er á við ólíkar þrautir svo vonandi skíðaferð….og þá tekur við vetrarfrí.
Kennari ekki á svæðinu en þið getið bloggað samantekt úr 5. hlekk. Upplagt að skoða bloggfærslur annarra nemenda og betrum bæta svo sitt.
Gangi ykkur vel.

Stutt nearpodkynning um segulmagn, segulkraft, hvernig hægt er að fá rafmagn úr segulmagni og tengslum þess við raforkuframleiðslu.
rafeindaseglar og seglanleiki málma
Mynd af rafmagnstöflunni heima…..muna að merkja inn á lekaliðann og setja svo myndina inn á bloggið
Allir náttúrufræðitímar dagsins falla niður og verður dagskráin:
Hér eru nokkrar tilraunir sem gaman er að herma eftir.
Leikum okkur í dag 😉
Nearpod kynning um rafrásir og öryggi með meiru.
Skoðum tengimyndir og kíkjum á teiknitákn.
Pælum í raðtengdum og hliðtengdum straumrásum
Lærum um viðnám og mismunandi gerðir viðnáma.
Heimavinnuverkefni
– taka mynd eða teikna upp rafmagnstöfluna heima
– merkja við lekaliðann.
– umfjöllun um rafmagnsöryggi.
Hugtakakort úr orkuhlekk.
Hugtök skrifuð á miða – flokkuð og tengd.
Byrjum á kortagerð – muna liti og tengsl.
Orð af orði.
Horfa á myndbönd kvistir og gera krossglímu úr lykilhugtökum
Svo er fínt að spjalla um eldingar.
Vísindavefurinn:
Kahoot um orku gott að æfa ensk hugtök
Baráttan um fossana!
Hve mætti bæta lands og lýðs vors kjör
að leggja á bogastreng þinn kraftsins ör,
að nota máttinn rétt í hrapsins hæðum,
svo hafin yrði í velldi fallsins skör.
– Og frjómögn lofts má draga að blómi og björk,
já, búning hitans sníða úr jökuls klæðum.
Hér mætti leiða líf úr dauðans örk
og ljósið tendra í húmsins eyðimörk
við hjartaslög þíns afls í segulæðum.
Dettifoss eftir Einar Benediktsson. –
Nýtum okkur bækurnar Eðlisfræði 1, 2 og 3 úr bókaflokknum litróf náttúrunnar og svo líka aðrar kennslubækur eins og “gömlu” orkubókina og framhaldsskóla kennsluefni.
Nýtum okkur þennan vef í hlekknum Norden i skolen
Hvernig fáum við rafmagn á Íslandi? vísindavefurinn
Vonandi eru allir hópar búnir að skila vökuverkefninu inn á padlet og það verða örugglega skemmtilegar kynningar í dag.
Munið að skila bloggfærslu um vísindavökuna í þessari viku.
Nýta tímann í vinnu við hluta af lokamatinu – rannsóknarverkefnið.
Skiladagur og kynningar fimmtudag 18. janúar.

Nauðsynlegt að halda áætlun – vonlaust að lenda í tímaþröng.
Muna að punkta niður í dagbók.
Taka myndir til að setja …
…eða hvernig sem niðurstöðurnar verða settar fram.
Gangi ykkur vel.
Notum tímann í dag til að fara yfir bloggið og fylla út matslistann.
Síðan er kynning á lokamati því nú er fyrsta verkefnið að byrja sem er rannsóknarverkefni og er n.k. útfærsla á vísindavökunni.
Pælum og plottum……þið veljið ykkur sjálf saman í hópa og miðað er við að skil verði fimmtudaginn 18. janúar og alls ekki síðar! Sem sagt öll næsta vika og mánudagur og þriðjudagur í þeirri næstu.
Byrjum tímann á að fara yfir bloggið á haustönn. Allir fá í hendur matslista, merkja með nafni og skoða svo bloggsíðuna sína vel og meta út frá listanum. Skila til kennara og námsmatið liggur svo fyrir strax eftir helgina. Þá verða öll verkefni komin inn á mentor og námsmat haustannar.
Ræðum vísindalega aðferð og hefjum vísindavöku. 
Förum á flug….skoðum bækur og vefsíður. Hvað á að rannsaka?
Skipulögð vinnubrögð óskast. Nýtum okkur hugtakakortið 😉

Hver er rannsóknarspurningin?
Hvernig verður henni svarað?
Hver er breytan? Ein eða fleiri?
Hvernig verður verkefnið kynnt?
Hópar settir saman…
…hugtakakort
…rannsóknarspurning
…vinnuferli
…efni og áhöld
…afrakstur ?hvað á að velja?
langar þig í te – ekki fyrir lofthrædda
SKRÍTIÐ OG SKONDIÐ NÝJU FÖTIN KEISARANS ….
Nemendur í 10. bekk gerðu margar tilraunir og skiluðu af sér skýrslum í desember. Hörkuvinna fram á síðasta dag en nú tekur við jólafrí og gleði.Jólakveðja,
Gyða Björk

Þessa viku verður margt jóla… í boði.
Myndir, skreytingar, lög, leikir, spil, matur, þrautir.
Nú er rétt að nota tímann til að taka til.

Jólafríið er handan við helgina og því verður bloggið að vera klárt. Öllum skýrslum, stöðvavinnu og verkefnum lokið.
Framkvæmum nokkrar tilraunir
þar sem efnahvörf eiga sér stað.
Höldum áfram efnafræðiumfjöllun – rifjum upp og bætum við nokkrum hugtökum:
Hjartasalt hitað
Matarsódi og edik
Fílatannkrem á morgun:
Notum tímann í dag til að vinna í skýrslum úr tilraunum.
Sýrustigsskýrslan á að vera tilbúin og skilað í dag.
Næsta fimmtudag þarf þurrísskýrslan að vera klár.

This artist rendering illustrates a conceptual design for a potential future mission that would land a robotic probe on the surface of Jupiter’s icy moon Europa. A Europa lander would need to withstand radiation, frigid temperatures, ice and potentially mist from possible plumes jetting from the moon’s surface. Image credit: NASA/JPL-Caltech

- Þurrís og málmur
- Þurrís og sápukúlur
- Þurrís og sápa
- Þurrís í heitt og kalt vatn
- Þurrís og blöðrur
- Þurrís og eldur
- Þurrís og rauðkálssafi
- Þurrís og plastpokar
- Efnaformúla þurrís og sýna með hamskiptin fyrir þurrgufun. Nota tákn og örvar rétt. Skrifið skýrslu um hverja stöð og skilið inn á blogg í færslu eða á verkefnabanka – möguleiki að nýta tölvuverstíma á fimmtudag.
![]()
https://www.jpl.nasa.gov/news/news.php?feature=1410Nasa rannsóknir


Óstillt efnajafna fyrir efnahvarfið væri:
CH4(g) + O2(g) —> CO2(g) + H2O(g)
En þegar búið er að stilla efnajöfnuna:
CH4(g) + 2O2(g) —> CO2(g) + 2H2O(g)

Ragnar Þór Pétursson og Þormóð Loga Björnsson vendikennslu í náttúrufræði.
Þið getið náð ykkur í frí forrit t.d. Chemical Balancer eða Chem. Equation til að æfa ykkur en vefsíðurnar eru betri t.d.
http://funbasedlearning.com/chemistry/chemBalancer/default.htm
https://phet.colorado.edu/en/simulation/balancing-chemical-equations
http://mr.ismennt.is/efn/efnajofnur.html
Æfing frá Sigurlaugu Kristmannsdóttur
Stutt myndband – Áslaug Högnadóttir
og annað á ensku – að stilla efnajöfnu
Verðum á Tungufellsdal og þeir sem þurfa geta klárað skýrslu.
Aðrir fara inn á Phet-forritin og reyna við sýrustigsæfingar.
Bæði þetta og hitt 😉 og TENGJUM FJÖGUR.
KANNSKI EITT STUTT efnafræðiKAHOOT Í LOK TÍMANS🙂
Fyrirlestur í dag um jónir og sýrustig. Nokkuð strembið efni sem við reynum að tækla saman.
Skoðum …… Hvað eru jónir?… Hvað er pH – gildi?
Súrnun sjávar
| Jónatafla | |||||
| Mínusjónir | |||||
|
ál
|
Al3+
|
brómíð
|
Br–
|
||
|
ammoníum
|
NH4+
|
flúoríð
|
F–
|
||
|
baríum
|
Ba2+
|
fosfíð
|
P3–
|
||
|
blý (II)
|
Pb2+
|
fosfat
|
PO43–
|
||
|
kalíum
|
K+
|
hýdroxíð
|
OH–
|
||
|
kalsíum
|
Ca2+
|
hýdríð
|
H–
|
||
|
járn (II)
|
Fe2+
|
joðíð
|
I–
|
||
|
járn (III)
|
Fe3+
|
nítrat
|
NO3–
|
||
|
kopar (II)
|
Cu2+
|
nítrit
|
NO2–
|
||
|
liþíum
|
Li+
|
nítríð
|
N3–
|
||
|
magnesíum
|
Mg2+
|
karbónat
|
CO32–
|
||
|
mangan (II)
|
Mn2+
|
karbíð
|
C4–
|
||
|
natríum
|
Na+
|
klóríð
|
Cl–
|
||
|
silfur
|
Ag+
|
permanganat
|
MnO4–
|
||
|
sink
|
Zn+
|
oxíð
|
O2–
|
||
|
strontíum
|
Sr2+
|
súlfat
|
SO42–
|
||
|
vetni
|
H+
|
súlfíð
|
S2–
|
||
|
súlfít
|
SO32–
|
||||
Starfskynningar hjá 9. og 10. bekk í dag.
Stutt verkefni sem tengist efnafræðinni.
…reynið nú – munið að lotukerfið er hér til hliðar á síðunni undir gagnlegt.
1. Hver er munurinn á frumeind og sameind?
2. Af hvaða sameindum er mest í andrúmslofti? Ritaðu heiti þeirra og efnatákn.
3. Hver er munurinn á frumefni og efnasambandi með tilliti til frumeinda?
4. Hvað er efnablanda?
5. Frumeind er samsett úr þrenns konar öreindum. Hvað heita þær?
6. Hver er massi róteindar?
7. Hver er hleðsla rafeindar?
10. Hvað er sætistala?
11. Hver er sætistala a) kalíns (K), b) bróms (Br) og c) kvikasilfurs (Hg)?
Skila svörum inn á bloggið.
Þegar þetta er búið er um að gera að skella sér í PhET forritið byggja frumeind og svo FÁ æfingin sem er gagnleg.
Einnig er hægt að fara á tölvustöðvar frá því á þriðjudag……fullt í boði 😉
Kennari ekki á svæðinu en þið getið notað tímann til að skoða tölvustöðvar sem voru settar inn á þriðjudaginn.
Þar eru nokkrar PhET – stöðvar sem eru mjög gagnlegar.
Nú svo má alltaf nýta tímann til að blogga.
Nýr hlekkur byrjar í dag. Efnafræði.
Þessa viku notum við í upprifjun. Svo tekur við nýtt námsefni og tilraunir því tengdar.
Byrjum á efnajöfnum, jónum og sýrustigi. Gerum sýrustigstilraun.
Þá tekur við umfjöllun um eiginleika efna og efnahvörf. Verðum með tilraunastöðvavinnu með þurrís.
Síðasta tilraun verður fílatannkrem og þá fjöllum við um varma í efnahvörfum, útvermið, innvermið og lögmál Hess.
Sem sagt margt merkilegt framundan og auðvitað skýrslugerð “masteruð”
Í tímanum í dag skoðum við nearpod-kynningu upprifjun á efnafræði með áherslu á frumeind og lotukerfi.