In order to view this page you need Flash Player 9+ support!

Næstu vikur – fram að árshátíð og páskafríi leggjum við áherslu á uppsveitirnar og vatnasvæði Þjórsár.
Nálgumst viðfangsefnið frá ýmsum hliðum og ferðumst frá upptökum til ósa, fræðumst um jarðfræði, líffræði, eðlisfræði og tengjum umhverfi.
Við skiptum þessu niður á 4 vikur. Fyrstu vikuna áhersla á jarðfræðina, þá næstu tengjum við lífríkinu, þriðju vikuna verður eðlisfræði og meðal annars virkjanir til umfjöllunar og endum svo á umhverfisfræðslu og framtíðarsýn.
Nemendur í 10. bekk unnu svipað verkefni þegar þeir voru í 8. bekk og því nýtum við tímann þessa síðustu önn til að klára ýmsa námsþætti samkvæmt námsskrá og förum yfir áhersluatriði í námsefni unglingastigs.
Næstu vikur verður áhersla á eðlisfræði. Hugtök tengd bylgjum, hljóði og ljósi til umfjöllunar en einnig verða sumir bekkir að glíma við varma og rafmagn.
Hlustið og skoðið…..sígild tónlist flutt á glas-hörpu.
Þessi stutti hlekkur er tileinkaður vísindalegri aðferð og skemmtilegum tilraunum.
Kynnumst vísindalegum vinnubröðgum og aðferðum. Hvað er breyta?
Nemendur vinna saman tvö eða þrjú í hópi.
Finna upp á einhverju skemmtilegu til að rannsaka og prófa.
Framkvæma tilraun - útskýra og kynna niðurstöður með einhverjum hætti.
Við eigum skemmtilegar vikur í vændum 
Nokkrir tenglar sem hægt er að kynna sér:
fleiri jólamyndir hér
Síðast uppfært: Mánudagur, 19. desember 2011 13:13


Góða skemmtunSíðast uppfært: Þriðjudagur, 22. nóvember 2011 15:28
Síða 1 af 2